Fara í efni

Plan við Fimleikahús/íþróttamiðstöð Egilsstöðum

21.09.2022 Fréttir Egilsstaðir

Vinna er hafin við yfirborðsfrágang á plani við fimleikahúsið/íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum.
Í haust verða lagðar lagnir, svæðið malbikað og gegndræpar ecoraster grindur lagðar á bílastæðin en lokafrágangur, svo sem við hellulögn og gróðursetningu eru áætlaður á næsta ári.

Vegfarendur og notendur íþróttamiðstöðvarinnar eru beðnir velvirðingar á því ónæði sem framkvæmdin kann að valda á aðgengi að svæðinu en að henni lokinni verður komið snyrtilegt bílaplan.

Plan við Fimleikahús/íþróttamiðstöð Egilsstöðum
Getum við bætt efni þessarar síðu?