Á Djúpavogi verður tekið forskot á Stóra plokkdaginn en þar verður plokkað næstkomandi sunnudag 19. apríl milli klukkan 10–16.
Íbúasamtökin á Djúpavogi halda utan um daginn í samstarfi við Múlaþing líkt og undanfarin ár. Hægt verður að fá poka og plokkprik á eftirfarandi stöðum:
- Markarland við spennistöð
- bílastæði við Hátún
- Búland – slökkvistöð
- neðst í Borgarlandi.
Í hádeginu verður boðið upp á súpu í Löngubúð þar sem allir plokkarar eru boðnir velkomnir.
Öll eru hvött til að taka þátt og huga að nærumhverfinu með því að tína upp rusl eftir veturinn. Við plokkið er gott að hafa eftirfarandi í huga:
- hafa með sér vinnuhanska
- klæða sig eftir veðri
- ákveða svæði og tala sig saman við aðra plokkara
- brýna fyrir börnum að vara sig á oddhvössum eða beittum hlutum
- binda vel fyrir ruslapoka að plokki loknu og skilja þá eftir á sýnilegum og aðgengilegum stað.
Þá eru öll jafnframt hvött til að nýta sér kortasjána plokkari.is en þar er hægt að merkja inn svæði sem búið er að plokka eða svæði sem þörf er á að plokka.
Ýmsar gagnlegar upplýsingar má nálgast á plokk.is.
Stóri plokkdagurinn verður síðan haldinn hátíðlegur um land allt viku síðar, eða sunnudaginn 26. apríl. Þar á meðal í öðrum þéttbýliskjörnum Múlaþings og verður nánar auglýstur síðar.