Vegna vinnu við endurnýjun á háspennurofum verður rafmagnslaust á hluta af Egilsstöðum um tíma næstu tvö kvöld.
Annars vegar verður rafmagnslaust á hluta af Egilsstöðum frá kl. 23:00 þann 19. ágúst til kl. 6:30 þann 20. ágúst. Mögulega kemur rafmagn á í stutta stund á meðan framkvæmdum stendur vegna prófana.
Hins vegar verður rafmagnslaust á hluta af Egilsstöðum þann 20. ágúst frá kl. 23:00-23.55. Jafnframt má búast við að rafmagn verði tekið af í stutta stund við lok aðgerðar á milli kl. 03:00 og 06:30 aðfaranótt 21. ágúst.
Sjá má kort af viðkomandi bæjarhlutum á vef Rarik. Þar má smella á lituðu svæðin á kortinu að fá nánari upplýsingar um tímasetningar rafmagnsleysisins.
Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000.