Fara í efni

Rafræn söfnun meðmæla fyrir framboð til sveitarstjórnar

05.03.2026 Kosningar Auglýsingar

Yfirkjörstjórn Múlaþings hefur opnað fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vefnum Ísland.is: Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar | Ísland.is.

Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar.

Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu. Hér er sniðmát að söfnun meðmæla á pappír sem framboð geta nýtt sér.

Hægt er að mæla með framboðum hér: Mæla með framboði í sveitarstjórnarkosningum 2026 | Ísland.is.

 

Yfirkjörstjórn Múlaþings

Borgarfjörður eystra
Borgarfjörður eystra
Getum við bætt efni þessarar síðu?