Fara í efni

Rausnarleg gjöf Kvenfélagsins Bláklukku eykur öryggi

26.06.2026 Fréttir Egilsstaðir

Á dögunum gaf Kvenfélagið Bláklukka Egilsstaðaskóla og Hlymsdölum sitthvort hjartastuðtækið. Múlaþing þakkar kvenfélaginu kærlega fyrir þessa rausnarlegu gjöf.

Vilmundína Lind Kristjánsdóttir formaður kvenfélagsins segir ákvörðunin um að gefa tækin hafi verið byggð á því að öryggi og heilsa samfélagsins sé það sem skiptir mestu máli. Hjartastopp geti orðið án nokkurs fyrirvara og þá skipta skjót viðbrögð sköpum.

,,Með þessari gjöf viljum við leggja okkar að mörkum til að stuðla að auknu öryggi fyrir nemendur, starfsfólk, eldri borgara og alla þá sem sækja þessar stofnanir og tryggja að nauðsynlegur búnaður sé til staðar ef neyðarástand skapast.“

Kvenfélagið Bláklukka hefur styrkt ýmis góð og mikilvæg mál undanfarin ár eins og til dæmis Krabbameinsfélag Austurlands, komu Úkraínufólks til Múlaþings, hreinsun á kirkjuorgeli, gefið HSA rausnarlegar gjafir í formi tækjabúnaðar sem hefur vantað, fjölskyldur sem hafa staðið frammi fyrir veikindum og svo mætti lengi telja.

Slík verkefni verða ekki að veruleika án mikillar sjálfboðavinnu. Kvenfélagið aflar fjár með ýmsum hætti en stærsta fjáröflunin er hið árlega jólabingó. Þá heldur félagið opna félagsvist, selur varning á Barramarkaði og tekur að sér erfidrykkjur og önnur tilfallandi verkefni.

Kvenfélög hafa verið starfrækt víða um land í áratugi og sum í rúm hundrað ár. Markmið slíkra félaga er fyrst og fremst að sinna líknar- og framfaramálum, þau stuðla að menntun og sjálfstæði og auka sjálfstæði og samvinnu kvenna á milli.

Kvenfélagið Bláklukka var stofnað í upphafi árs 1948 og hefur gengt mikilvægu hlutverki og þá ekki síst með því að stuðla að samveru í gegnum ýmis konar viðburði. Jólabingóið er ómissandi hluti af aðventunni á mörgum heimilum á svæðinu og þá er félagsvistin einnig stór þáttur í félagslífi og samveru annarra. Á sumardaginn fyrsta á hverju ári býður kvenfélagið í samstarfi við annað kvenfélag á héraði eldri borgurum í kaffisamsæti á Hlymsdölum. Þessi viðburður hefur vakið mikla lukku og veitir félagskonum sérstaka ánægju.

Innt eftir starfinu innan félagsins sagði Vilmundína ,,að vera í kvenfélaginu Bláklukku er ekki bara eilífur bakstur og vesen eins og stundum er sagt heldur mjög skemmtilegt og gefandi starf. Þar kynnist maður konum á öllum aldri og úr öllum stéttum . Við látum gott af okkur leiða og skemmtum okkur um leið. Ég vil hvetja konur á öllum aldri til að kynna sér starf kvenfélagsins og vera með í góðum félagsskap og gefandi verkefnum.“

Félagasamtök líkt og Kvenfélagið Bláklukka eru samfélaginu afar dýrmæt enda er framlag þeirra til velferðar, öryggis og samheldni ómetanlegt. Með starfi sínu efla þau samkennd, samstöðu og lífsgæði íbúa Múlaþings.

Frá afhendingu tækisins í Hlymsdölum
Frá afhendingu tækisins í Hlymsdölum
Getum við bætt efni þessarar síðu?