Múlaþing leitar að aðilum til að annast refa- og minkaveiðar á neðangreindum veiðisvæðum innan sveitarfélagsins. Samið verður við veiðimenn til þriggja ára í senn með möguleika á framlengingu um allt að tvö ár.
Umsóknir skulu sendar á umhverfisfulltrui@mulathing.is. Í umsókn skal koma fram nafn veiðimanns og kennitala, hvaða veiðisvæði sé óskað eftir og frekari upplýsingar svo sem fyrri reynsla eða meðmæli. Umsókn skal fylgja staðfesting á að umsækjandi hafi gilt veiðikort.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní.
Refaveiðar
Refaveiðimenn með samning fá greitt fyrir skott sem skilað er til sveitarfélagsins og vitjun grenja að uppfylltum skilyrðum. Ráðnir veiðimenn fara með grenjavinnslu og vetrarveiði á sínu svæði og er heimilt að hafa með sér einn aðstoðarmann við veiðarnar.
Auglýst er eftir refaveiðimönnum á eftirfarandi veiðisvæði:
- Svæði 5. Hjaltastaðaþinghá: svæði milli Selfljóts og Bjarglandsár.
- Svæði 6. Hjaltastaðaþinghá: svæði ofan við Bjarglandsá.
- Svæði 9. Jökuldalur og Jökulsárhlíð: Hauksstaðir, Hrólfsstaðir, Selland og Fossvellir.
- Svæði 15. Jökuldalur: Arnórsstaðir neðan Möðrudalsleiðar, Langagerði, Hákonarstaðir, Breiðilækur, Víðihólar, Veturhús, Grund og Eiríksstaðir.
- Svæði 24. Borgarfjörður, Njarðvík, Brúnavík og Breiðuvík.
- Svæði 25. Loðmundarfjörður og Húsavík.
Minkaveiðar
Minkaveiðimenn fá greitt fyrir skott sem er skilað til sveitarfélagsins, akstur og leit að uppfylltum skilyrðum. Ráðnir veiðimenn fara með veiðar á sínu svæði og skulu notast við veiðihunda. Einnig er hvatt til gildruveiða. Minkaveiðimönnum er heimilt að hafa með sér einn aðstoðarmann við veiðarnar.
Auglýst er eftir minkaveiðimönnum á eftirfarandi veiðisvæði:
- Austur-Hérað: Fljótsdalshérað austan Lagarfljóts.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Aspar Stefánsson, netfang stefan.stefansson@mulathing.is eða í síma: 4 700 732.