Fara í efni

Reglur varðandi smáhýsi

22.06.2023 Fréttir

Heimilt er að reisa smáhýsi á lóð án leyfis eða tilkynningar til byggingarfulltrúa. Smáhýsi er skýli sem almennt er ætlað til geymslu garðáhalda og þess háttar og er ekki ætlað til gistingar eða búsetu. Slíkt skýli getur til dæmis verið notað sem garðhýsi, hjólageymsla eða sauna.

  • Smáhýsi er ekki upphitað en heimilt er að tengja rafmagns-, neysluvatns- og fráveitulagnir við það.
  • Smáhýsi má vera allt að 15 m² og 2,5 m á hæð. Miða skal við brúttófermetrafjölda og hæð smáhýsisins skal mæld frá yfirborði jarðvegs og miðuð við hæsta punkt smáhýsisins, hvort sem það er útveggur eða þak.
  • Eingöngu er heimilt að setja smáhýsi á lóðir ef slíkt veldur ekki brunahættu fyrir nærliggjandi lóðir. Fara skal eftir leiðbeiningum með 9.7.6. gr. brgl. um fjarlægðarmörk glugga og hurða húss frá smáhýsi. Í leiðbeiningunni er einnig fjallað um brunavarnir út frá fyrirhugaðri notkun smáhýsis.
  • Ef fjarlægð smáhýsis er minna en 3 m frá næstu lóð þarf að liggja fyrir samþykki eiganda aðliggjandi lóða áður en það er reist. 

Sækja þarf um byggingarleyfi ef mannvirki fellur utan framangreindra marka (og á það við um allar gerðir mannvirkja). Eigandi sem ræðst í byggingu smáhýsis ber ábyrgð á að ekki skapist hætta fyrir fólk og eignir vegna þess og að virt séu öll viðeigandi ákvæði byggingarreglugerðar. Hann skal einnig gæta þess að fyrirhugaðar framkvæmdir séu í samræmi við gildandi skipulagsáætlanir. Eigandi mannvirkis ber jafnframt ábyrgð á að ekki sé gengið á rétt nágranna og að virt séu ákvæði laga um fjöleignarhús, samanber 2.3.6. grein byggingarreglugerðar. Almennt skal ekki staðsetja meira en 1-2 smáhýsi á lóð.

Óheftur bruni í smáhýsi getur valdið umtalsverðri hættu fyrir nálæg mannvirki og lausafé, til dæmis bíla. Hættan felst einkum í hitageislun og reyk sem leggur frá brunanum. Hitageislunin minnkar með aukinni fjarlægð þannig að sé fjarlægð milli húsa tvöfölduð minnkar hitageislunin sem lendir á næsta húsi niður í fjórðung. Varðandi reyk frá brunanum þá stígur hann upp og því berst að jafnaði minni reykur til húss sem stendur lægra á lóðinni en til þess sem stendur hærra. Staðsetning smáhýsis innan lóðar hefur þannig mikil áhrif á hættuna sem getur stafað af bruna í því og ætti að ákveða staðsetningu þess út frá þessum atriðum.

Með smáhýsi er hér átt við óeinangraða skúra úr timbri, gleri eða sambærilegu efni sem nær því að teljast að minnsta kosti klæðning í flokki 2. Notkun smáhýsa getur verið til dæmis geymsla fyrir garðverkfæri, gróðurhús og aðra starfsemi sem ekki veldur háu brunaálagi. Með háu brunaálagi er átt við meira en 10 lítra af bensíni og gaskút til dæmis fyrir grill. Ef gaskútur er geymdur í smáhýsi ætti að setja rist bæði ofan til og neðarlega (neðst), sem er að minnsta kosti, 200 cm² að stærð, í vegg eða á hurð þess til að tryggja útloftun ef gaskúturinn lekur.

Þegar smáhýsi eru byggð á lóðum frístundahúsa þarf að gæta þess að bruni í frístundahúsinu hindri ekki rýmingu úr smáhýsinu. Í því sambandi skal gætt að bil á milli húsanna sé minnst 3,0 m.

 

Reglur varðandi smáhýsi
Getum við bætt efni þessarar síðu?