Í dag var byrjað að birta reikninga frá Múlaþingi í stafrænu pósthólfi á island.is. Einhverjir flokkar reikninga birtast ekki, en þeir koma inn eftir páska. Auðvelt er að nálgast reikningana hvort sem það er í gegnum island.is appið eða í pósthólfinu á vefsíðu island.is. Gott er að stilla tilkynningar frá island.is á þann hátt sem hentar hverjum og einum.
Reikningar sem gefnir voru út frá byrjun nóvember sl. til dagsins í dag eru ekki birtir rafrænt en hægt er að óska eftir þeim. Reikningar sem gefnir voru út fyrir nóvember 2025 eru á sínum gamla stað Mínum síðum Múlaþings.
Þeim sem ekki geta notað island.is en þurfa afrit af reikningi, er bent á að senda tölvupóst á innheimtur@mulathing.is.