Fara í efni

RockCamp Egilsstaðir í Vegahúsinu

18.03.2026 Fréttir Egilsstaðir

Um síðustu helgi fór fram nýstárlegt verkefni í Vegahúsinu, ætlað ungu fólki sem og ungmennaleiðtogum sem starfa með ungu fólki í gegnum tónlist. Um var að ræða samstarfsverkefni, styrkt af Erasmus+, með finnsku ungmennasamtökunum RockCamp en þau sérhæfa sig í að virkja og styrkja ungt fólk víðs vegar um Finnland í gegnum tónlist, einkum rokk og þungarokk.

Hugmyndin að verkefninu kviknaði á norrænni tengslaráðstefnu Erasmus+ Nordic Thematic Seminar sem fram fór í Helsinki í nóvember á síðasta ári en þar kynntist starfsfólk Vegahússins, þau Hildur Bergsdóttir og Ásmundur Máni Þorsteinsson, fulltrúum frá RockCamp samtökunum og starfi þeirra. Úr varð heilmikill hugarstormur og samvinnugleði sem leiddi af sér þetta verkefni RockCamp Egilsstaðir.

Fimm kennarar, þau Satu Haveri, Vesa Ranta, Kimmo Perämäki, Kari Olli og Lauri Tuohimaa frá finnsku RockCamp samtökunum heimsóttu Vegahúsið og héldu margs konar vinnusmiðjur tengdar rokki og þungarokki, svo sem um sviðsframkomu, upptökutækni, gítarriff og sitt hvað fleira.

Tæplega þrjátíu ungmenni og ungmennaleiðtogar víða að af Austurlandi sóttu vinnusmiðjurnar sem hófust um hádegi á laugardag og lauk með litlum tónleikum finnsku þungarokkaranna seinnipart mánudags en þeir eru allir stór og þekkt nöfn í finnska þungarokksheiminum.

Finnska tónlistarfólkið var hugfangið af því hversu hæfileikarík og öflug austfirsku ungmennin voru og öll þau sem að verkefninu standa eru sammála um að þetta gjöfula samstarf RockCamp og Vegahússins sé vonandi bara rétt að byrja.

Mynd: Katla Torfadóttir
Mynd: Katla Torfadóttir
Getum við bætt efni þessarar síðu?