Fara í efni

Rúllandi snjóbolti 19 opnar í ARS LONGA

23.06.2026 Fréttir Djúpivogur

Opnun sýningarinnar Rúllandi snjóbolti 19 verður laugardaginn 27. júní klukkan 15:00 í ARS LONGA, Djúpavogi. Sýningin verður opnuð með formlegum hætti af Loga Einarssyni menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og He Rulong sendiherra Alþýðulýðveldisins Kína á Íslandi. Sýningin stendur yfir frá 27. júní til 2. ágúst 2026.

Rúllandi snjóbolti 19 er alþjóðleg samtímalistasýning og samstarfsverkefni ARS LONGA samtímalistasafns og Kínversk-evrópsku menningarmiðstöðvarinnar (CEAC) í Xiamen í Kína. Þetta er í tíunda sinn sem Rúllandi snjóbolti er haldin hér á landi og sá þriðji í húsakynnum Ars Longa, sem listamennirnir Sigurður Guðmundsson og Þór Vigfússon stofnuðu árið 2021. Markmið Ars Longa samtímalistasafns er að vera lifandi vettvangur alþjóðlegrar listar og efla tengsl milli íslenskra og erlendra listamanna.

Í ár taka 19 listamenn þátt í sýningunni en þeir eru: Aðalsteinn Þórsson, Andri Björgvinsson, Arna Guðný Valsdóttir, Donglai Meng, Fangzhou Wu, Guda Koster & Frans van Tartwijk, Hanna Dís Whitehead, Hulya Yilmaz, Jin Jing, Jun Zhang, Kjartan Ari Pétursson, Kristinn E. Hrafnsson, Kristján Guðmundsson, Linus Lohmann, Meiya Lin, Rein Kooyman, Yuxuan Cui og Þórir Freyr Höskuldsson.

Sýningarstjórn: Heiðdís Hólm Guðmundsdóttir, Hildur Rut Halblaub, Ineke Guðmundsson og May Lee.

Sýningin í ár er sérstaklega helguð minningu listamannsins Kristjáns Guðmundssonar (1941-2025) sem átti sterka og sérstaka tengingu við Rúllandi snjóbolta og ARS LONGA.

Verkefnið er unnið með stuðningi Múlaþings, Myndlistarsjóðs og Uppbyggingarsjóðs Austurlands.

Linus Lohmann: Free energy, family tree II, 2026

Rein Kooyman: Slate stone instellation, 2026

Yuxuan Cui: Cheng Chia Tun Manuscripts, 2025–2026

Kristinn E. Hrafnsson: Staður fyrir mikið útsýni og lítið ímyndunarafl (tileinkað K.G.), 2001

Kristján Guðmundsson: Verk fyrir hægan og hraðan blástur, 1971

Rúllandi snjóbolti 19 opnar í ARS LONGA
Getum við bætt efni þessarar síðu?