Fara í efni

Rýming á Seyðisfirði

18.09.2023 Fréttir Seyðisfjörður

Vegna úrkomuspár á Austurlandi þá hefur Lögreglan á Austurlandi í samráði við Veðurstofu Íslands og Ríkislögreglustjóra ákveðið að rýma neðangreind hús á Seyðisfirði.
Óvissustig Almannavarna hefur verið virkjað og von er á að viðbúnaðarstigið færist upp á hættustig seinna í dag.

Rýmingin tekur gildi frá klukkan 18:00 í dag, mánudaginn 18. september og er í gildi þar til önnur tilkynning verður gefin út. Áfram er fylgst náið með stöðu mála.

Rýmingarreitirnir sem um ræðir eru: 4 – 5 – 6 – 7a.
Húsin sem um ræðir eru:
Strandarvegur 39 – 35 – 33 – 29 -27 – 23 -21 – 19 til 15 – 13 – 2 – 1 til 11.
Hafnargata 57 – 54 – 53a -53 – 52a – 52 – 50 – 51 – 49 – 48b – 48 – 47 – 46b 46 – 44b – 44 – 43 – 42b – 42 – 40 – 38 – 25.

Hér að neðan er kort af rýmingarreitum sem um ræðir, nr. 4, 5, 6 og 7a.
Sjá einnig kort af öðrum rýmingarreitum á Seyðisfirði á vef Veðurstofu Íslands.

Rýming á Seyðisfirði
Getum við bætt efni þessarar síðu?