Fara í efni

Rýming húsa í Neskaupstað og á Seyðisfirði

27.03.2023 Fréttir Seyðisfjörður

Veðurstofa Íslands hefur ákveðið að rýma hús í Neskaupsstað í varúðarskyni. Það svæði sem ákveðið hefur verið að rýma er að hluta fyrir neðan varnargarða, en það svæði er rýmt engu að síður vegna þess að snjór er léttur, ef annað flóð fellur á garðinn er möguleiki á að eitthvað gæti lekið yfir garðinn sökum léttleika snævar. Það er ekki talin hætta á að flóð valdi skemmdum neðan garða, þetta er varúðarráðstöfun. Björgunarfólk í Neskaupstað og á Seyðisfirði vinnur nú að rýmingu. Það er ljóst að ekki varð manntjón í Neskaupstað þar sem flóðið lenti á húsum í morgun.

Á Seyðifirði er snjóflóðahætta en þar féll snjóflóð síðdegis í dag undir Bjólfinum. Tjón varð á húsi sem er mannlaust og er húsið mikið skemmt.

Þau hús sem ákveðið hefur verið að rýma í Neskaupstað eru eftirfarandi:

Strandgata 20,43,44,45,62 og 79 Urðarteigur 2,4,6,8,10,12,12a,14,16,18,20,22,26,28,37a
Naustahvammur 20,45 og 48 Vindheimanaust 5, 7 og 8 Borgarnaust 6-8 Hafnarnaust 5
Naustahvammur 52, 54, 57, 67, 69 og 76 Hlíðargata 16a,18,22,24,26,28,32,34
Blómsturvellir 11,13,15,17,21,25,27,33,35,37,39,43,45,47,49 Víðimýri 1,3,5,7,9,11,13,16,17,18
Gauksmýri 1-4,5,6 Hrafnsmýri 1,2,,3-6 Starmýri 1, 17-19 og 21-23 Breiðablik 11
Gilsbakki 1,3,5,7,9,11,13,14 Mýrargata 9,11,13,15,17-21,23,25,26,28a,28b, 29,31,33,35,37,41
Nesbakki 2,4,5,6,8,10,12-17, 19-21 Lyngbakki 1,3,og 5 Marbakki 5, 7-14 Sæbakki 11,13,15,18,22,24,26,28,32

Þau hús sem ákveðið hefur verið að rýma á Seyðisfirði eru eftirfarandi:

Gilsbakki 1 Hamrabakki 8–12 Fjarðargata 1 Fjörður 1, 4 og 6 Ránargata 2 Ránargata 2a, 2c, 4, 8, 9 (farfuglaheimili), 11, 13 og 15
Ránargata 17 og 23 Vestdalseyrarvegur 2 Strandarvegur 27, 29–33, 35 Strandarvegur 15–19, 21 og 23
Hafnargata 52a Strandarvegur 1–11 Hafnargata 35–37, 41, 42, 42b, 44, 44b, 46 og 47.

Íbúar eru beðnir um að fara í fjöldahjálparstöð í Herðubreið til skráningar.

Rýming húsa í Neskaupstað og á Seyðisfirði
Getum við bætt efni þessarar síðu?