Austurfrétt/Austurglugginn, í samvinnu við sveitarfélagið Múlaþing, mun standa fyrir sameiginlegum fundi með fulltrúum allra framboða sunnudagskvöldið 10. maí klukkan 20:00.
Fundurinn verður sendur út í beinni útsendingu í gegnum Austurfrétt. Á vef Austurfréttar mun birtast frétt með útsendingunni skömmu fyrir upphaf fundar.
Á fundinum verða aðeins bornar fram spurningar til frambjóðenda sem borist hafa í gegnum vefkerfi. Þar verður líka hægt að kjósa með spurningum sem gefa mun fundarstjóra vísbendingar um mikilvægustu málefnin.
Með þessu fyrirkomulagi er leitast við að gefa íbúum Múlaþings jafnan möguleika á að koma sínum spurningum á framfæri, óháð búsetu.
Notast er við kerfi sem heitir Menti en það hefur verið notað á fjölmörgum íbúafundum, sem og fyrri kosningafundum Austurfréttar/Austurgluggans. Það er þegar opið og verður opið þar til fundinum lýkur.
Hægt er að senda inn spurningar með því að fara á Menti.com og slá inn kóðann 3706 5252 eða fara á slóðina https://www.menti.com/alrzhqv8tjsb.