Einn af lokahnykkjum utandagskrár Hammondhátíðarinnar í ár var formleg afhending gömlu kirkjunnar á Djúpavogi til Hollvinasamtaka hennar.
Samtökin og samfélagið á Djúpavogi hafa lyft grettistaki þegar kemur að því að sinna endurbótum og viðhaldi á kirkjunni svo hægt sé að nýta hana sem samfélagssmiðju. Hugmyndin er að heimafólk og aðrir sem vilja halda viðburði, sýningar, tónleika eða annars konar uppákomur á Djúpavogi geti gert það í gömlu kirkjunni.
Allt starfið hingað til hefur verið unnið í sjálfboðavinnu, sem undirstrikar hversu mikils virði kirkjan er í hugum Djúpavogsbúa.
Aðspurð um það hvað sé á döfinni í kirkjunni sagði Íris Birgisdóttir formaður hollvinasamtakanna ,,Næstu skref hjá okkur er að klára að einangra undir gólfið og koma fyrir þeim lögnum sem þarf áður en við leggjum ný gólfborð. Í framhaldinu förum við í sumarfrí í framkvæmdum en beinum sjónum okkar að markaðsstemningu, litlum viðburðum og námskeiðahaldi.“
Sveitarfélagið Múlaþing mun styrkja hollvinasamtökin um 500.000 krónur á ári næstu þrjú árin. Markmiðið með styrknum er að ljúka þeim framkvæmdum sem eftir standa, en að þeim loknum er gert ráð fyrir að rekstur kirkjunnar verði sjálfbær.
Tekjur af viðburðahaldi í kirkjunni munu meðal annars renna til áframhaldandi uppbyggingar, viðhalds og reksturs hennar.
Íris segir gildi samningsins á milli Múlaþings og hollavinasamtakana mikið: ,,Samningurinn hefur mikla þýðingu fyrir okkur. Kirkjan er íbúum mjög mikilvæg og þegar upp kom sú umræða að selja hana hugnaðist þeim það alls ekki. Sá fjöldi fólks sem lét sig málefni kirkjunnar varða og sá samtakamáttur sem einkennir vinnudaga sem Hollvinasamtökin hafa boðað til við endurbæturnar síðastliðið ár sýna glögglega hversu sterkar tilfinningar íbúar á svæðinu bera til hússins. Það er því mjög viðeigandi að hún sé einmitt í eigu þeirra allra. Þó Hollvinasamtökin haldi utan um reksturinn og nú formlegt eignarhald þá eiga íbúar vissulega kirkjuna. Við erum mjög þakklát Múlaþingi fyrir að hlusta á ákall samfélagsins og þann stuðning sem þau hafa sýnt“.
Samkvæmt samningnum mun eignarhald kirkjunnar færast aftur til sveitarfélagsins ef starfsemi samtakanna leggst af. Múlaþing mun þá tryggja að kirkjan haldi áfram hlutverki sínu sem samfélagssmiðja, enda hefur samfélagið sýnt fram á mikilvægi hennar með óeigingjarnri vinnu síðustu missera.
,,Vinnudagarnir hafa allir verið æðislegir og svo góð áminning fyrir okkur öll um hvernig það er og á að vera að búa í samfélagi. Þar koma saman ungir og aldnir og allir eru boðnir og búnir til að leggja sitt af mörkum. Sumir sjá til þess að það sé alltaf heitt á könnunni, og aðrir hlaupa heim að sækja verkfæri sem þarf, baka köku eða elda ofan í hersinguna. Markmiðið er að auðvitað að endurbyggja kirjuna en svo kom í ljós að aðal ávinningurinn er samveran“. Sagði Íris að lokum og undirstrikaði þannig vægi samveru og samfélags.
Hollvinasamtökunum og íbúum Djúpavogs er óskað til hamingju með þennan áfanga í sögu kirkjunnar. Áhugavert verður að fylgjast með þróun starfseminnar og því lífi sem þar mun dafna í framtíðinni.
Fyrir áhugasöm er vert að minnast á að aðalfundur Hollvinasamtaka um gömlu kirkjuna á Djúpavogi fer fram 28. maí 2026 klukkan 17:00 í gömlu kirkjunni.