Fara í efni

Samkomulag um 215 milljónir króna til uppbyggingar atvinnulífs á Seyðisfirði

12.03.2021 Fréttir

TwitterSigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, undirritaði í dag samkomulag við Múlaþing um þriggja ára verkefni til að byggja upp atvinnulíf á Seyðisfirði, sem stendur frammi fyrir margþættum vanda í kjölfar hamfaranna í desember sl. Ríkisstjórnin leggur til 215 milljónir króna til að styðja við þróun atvinnutækifæra og nýsköpun, greiða fyrir því að óvissa verði leidd til lykta og einyrkjum og minni fyrirtækjum veitt ráðgjöf.

Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra heimsótti Seyðisfjörð í gær, miðvikudaginn 11. mars. Tilefni heimsóknarinnar var undirritun á samkomulagi um 215 milljóna króna stuðning við atvinnulíf á Seyðisfirði. Auk ráðherra skrifuðu Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings og Jóna Árný Þórðardóttir framkvæmdastjóri Austurbrúar, undir samkomulagið.

Verkefnisstjórn er skipuð tveimur fulltrúum Múlaþings, tveimur fulltrúum íbúa á Seyðisfirði og einum fulltrúa Austurbrúar. Austurbrú heldur utan um verkefnið og hefur ráðið til þess verkefnisstjóra. Fjárframlag ríkisins mun nema 105 milljónum kr. í ár en 55 milljónum kr. hvort ár, 2022 og 2023. Byggðastofnun mun veita ráðgjöf og styðjast þar við reynslu sína við uppbyggingu atvinnulífs. Múlaþing og Austurbrú munu leggja til fjármagn, vinnuframlag og aðstöðu.

Markmið verkefnisins er að aðstoða við að leiða til lykta þau stóru óvissumál sem við blasa og jafnframt að bjóða einyrkjum og minni fyrirtækjum uppá rekstrarráðgjöf og styðja við nýsköpun og þróun atvinnutækifæra á Seyðisfirði. Lögð er áhersla á að virkja frumkvæði íbúa og annarra haghafa sem tengjast byggðarlaginu. Meðal annars og ekki síst er verkefninu ætlað að hvetja íbúa og fyrirtæki til að nýta sér kosti þess stoðkerfis sem rekið er af hálfu ríkis og sveitarfélaga.

Í verkefnisstjórn sitja Gauti Jóhannsson og Stefán Bogi Sveinsson fyrir Múlaþing, Ólafur Hr. Sigurðsson og Berglind Harpa Svavarsdóttir fyrir heimastjórn Seyðisfjarðar og Einar Már Sigurðarson fyrir Austurbrú. Gauti er jafnframt formaður verkefnastjórnar.

Fréttina í heild sinni má lesa á vef Stjórnarráðs Íslands

Á myndinni eru Jóna Árný fh. Austurbrúar, Sigurður Ingi ráðherra og Björn Ingimarsson sveitarstjóri …
Á myndinni eru Jóna Árný fh. Austurbrúar, Sigurður Ingi ráðherra og Björn Ingimarsson sveitarstjóri Múlaþings.
Getum við bætt efni þessarar síðu?