Fara í efni

Samningar um uppbyggingu Fellavallar undirritaðir

11.05.2023 Fréttir Egilsstaðir

Fimmtudaginn 11. maí 2023 verða undirritaðir samningar um uppbyggingu á Fellavelli í sumar.
Eru það annars vegar Múlaþing og Byggingarfélagið Höttur sem undirrita samning um fjármögnun framkvæmdarinnar en hins vegar undirritar Byggingarfélagið Höttur samning við Altis um kaup á gervigrasi og vinnu við framkvæmdina. Er það Byggingarfélagið Höttur sem heldur utan um þessa stóru framkvæmd og er stefnan sett á að vinna hana á svipaðan hátt og viðbyggingu við Íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum en þar var hægt að vinna ýmis verk á hagkvæman máta með samstilltu átaki félagsins og sjálfboðaliða.

Samningar um uppbyggingu Fellavallar undirritaðir
Getum við bætt efni þessarar síðu?