Fara í efni

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks óskar eftir ábendingum

21.10.2026 Fréttir

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks vill heyra frá íbúum og hvetur fólk til að koma á framfæri hugmyndum, ábendingum og málefnum sem mikilvægt er að vekja athygli á.

Samráðshópurinn fundar fjórum sinnum á ári og er vettvangur fyrir umræður um málefni fatlaðs fólks, upplýsingamiðlun og ábendingar. Hlutverk hópsins er meðal annars að stuðla að aukinni þátttöku, bættu aðgengi og fleiri tækifærum fyrir fatlað fólk í samfélaginu.

Til að starf hópsins endurspegli sem best þarfir og sjónarmið þeirra sem málin varða er mikilvægt að fá ábendingar frá íbúum. Það geta verið hugmyndir að úrbótum, spurningar eða önnur málefni sem snerta daglegt líf fatlaðs fólks og aðstandenda þess.

Hefur þú eitthvað sem þú vilt koma á framfæri?

Íbúar eru hvattir til að senda samráðshópnum hugmyndir og ábendingar. Með því er stuðlað að því að málefni fatlaðs fólks fái aukið vægi og að raddir þeirra sem málin varða heyrist betur. Allar hugmyndir sem geta stuðlað að betra, aðgengilegra og meira inngildandi samfélagi eru vel þegnar.

Hafðu samband

Hægt er að senda ábendingar og hugmyndir til Önnu Steinunnar Árnadóttur, deildarstjóra í málefnum fatlaðs fólks á anna.arnadottir@mulathing.is eða til formanns hópsins, Unnar Ólafar Tómasdóttur á unnur.tomasdottir@mulathing.is.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks óskar eftir ábendingum
Getum við bætt efni þessarar síðu?