Fara í efni

Samstarf um aðgerðir gegn ofbeldi

21.03.2023 Fréttir

Í gær var haldin upphafsfundur verkefnis um áframhaldandi þróun á svæðisbundnu samstarfi um aðgerðir gegn ofbeldi meðal lykilaðila á Austurlandi. Fundurinn er hluti af uppbyggingu á landsvísu á svæðisbundnu samráði um ofbeldis- og afbrotavarnir. Reynslan hefur sýnt að þverfaglegt svæðisbundið samstarf gegn ofbeldi er líklegast til að varna því, tryggja nauðsynlega vernd og stuðning fyrir þolendur og aðstoð við gerendur til að láta af hegðun sinni. Verkefninu er ætlað að efla og styðja við frekari þróun á þverfaglegri samvinnu meðal lykilaðila á hverju landssvæði, þar með talið félagsþjónustu, sérfræðiþjónustu sveitarfélaga, barnaverndaryfirvalda, heilbrigðisþjónustu, skóla, félagasamtaka og lögreglu. Lykilsamstarfsaðilar í verkefninu eru sveitarfélög og landshlutasamtök.

Á fundinum var skipaður vinnuhópur sem kemur til með að undirbúa vinnustofu sem haldin verður í haust til að móta formlegan samstarfsvettvang á milli þátttakanda og sameinast um áherslur vegna ofbeldis- og afbrotavarna á Austurlandi. Vinnuhópinn skipa ásamt lögreglustjóra á Austurlandi þær Júlía Sæmundsdóttir, félagsmálastjóri Múlaþings, Laufey Þórðardóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar og Ásdís Helga Bjarnadóttir, yfirverkefnastjóri hjá Austurbrú.

Samstarf um aðgerðir gegn ofbeldi
Getum við bætt efni þessarar síðu?