Múlaþing auglýsir eftir umsóknum um styrki til íþrótta- og tómstundastarfs. Um er að ræða seinni úthlutun ársins 2026 og er umsóknarfrestur til og með 15. október 2026.
Styrkir eru veittir einstaklingum, hópum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum til íþrótta- og tómstundatengdra verkefna.
Umsækjendur þurfa að tengjast Múlaþingi með einhverjum hætti, annaðhvort með búsetu, með því að verkefni eða viðburður fari fram í Múlaþingi eða að verkefnið feli í sér kynningu á íþrótta- og tómstundastarfi í sveitarfélaginu.
Dæmi um verkefni sem hlutu styrk í fyrri úthlutun ársins 2026 eru frisbígolfvöllur í Selskógi, búnaður til íshokkí- og skautaiðkunar barna, íþróttaæfingar fyrir börn á Borgarfirði eystra og uppbygging golfvallar á Djúpavogi.
Athugið að styrkirnir eru verkefnastyrkir til íþrótta- og tómstundastarfs en ekki heilsueflingarstyrkir til einstaklinga.
Sótt er um rafrænt á Mínum síðum Múlaþings. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun íþrótta- og tómstundastyrkja fjölskylduráðs Múlaþings áður en umsókn er send inn.
Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2026.
Styrkir eru greiddir út á því ári sem þeir eru veittir og færast ekki milli ára nema sérstaklega sé um það samið.