Fara í efni

Sérstakir frístundastyrkir út árið og sótt um gegnum Sportabler

27.09.2021 Fréttir

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur framlengt sérstaka frístundastyrki fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og verður nú hægt að sækja um styrki út árið 2021.

Hægt verður að sækja um styrkina með sambærilegum hætti og hefðbundinn frístundastyrk sem Múlaþing veitir, eða við skráningu barns í íþrótt eða tómstund gegnum rafrænt skráningarkerfi Sportabler.

Hægt er að sækja sérstakan frístundastyrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2006-2015 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 787.200 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júní 2021. Styrkurinn er 25.000 kr. á hvert barn til áramóta og rúmlega 13.000 börn eiga rétt á styrknum. Stefnt er á að veita sams konar styrk eftir áramót.

Sérstakir frístundastyrkir út árið og sótt um gegnum Sportabler
Getum við bætt efni þessarar síðu?