Þann 21. september 2026 frá klukkan 9:00 til 22. september klukkan 18:00 mun Landsnet vinna við Seyðisfjarðarlínu og í tengivirki þeirra á Seyðisfirði.
Meðan á þessari vinnu stendur mun Landsnet ekki afhenda neina orku til Seyðisfjarðar. Virkjanirnar á svæðinu munu því halda uppi rafmagni á Seyðisfirði og Mjóafirði.
Ekki er búist við rafmagnsleysi af þessum sökum en fólk er beðið að fara sparlega með rafmagn.
Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528-9000. Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof.