Fara í efni

Sjómannadagur í Múlaþingi

07.06.2022 Fréttir

Múlaþing óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með sjómannadaginn.

Borgarfjörður Eystri
Sunnudagur 12. Júní 2022

11.00: Sjómannadagsmessa útí höfn (ef veður leyfir).

12.00: Sigling - Sjómenn bjóða gestum í siglingu úr höfninni.

13.00: (Þegar siglingu er lokið) Belgjaslagur og stuð á bryggjunni útí höfn.

15.00: Sjómannadagskaffi Sveinunga í Fjarðarborg.

 

Djúpivogur
Sunnudagur 12. Júní 2022

Kl 10:45 Upphitun fyrir messu, sjóaralög á harmoniku.

Kl 11:00 Guðsþjónusta við Faktorshúsið.

Kl 12:00 Dorgveiðikeppni á smábátabryggju.

Kl 12:30 Grillveisla í umsjón Björgunarsveitarinnar Báru ásamt sjómannadagssöngatriði.

Kl 12:30-14:00 Arctic Fun með kayjaka og ferðir inn á hvítu sanda fyrir nemendur á unglingastigi.
Kayakar í höfninni fyrir yngri börn í boði foreldrafélaganna.
Þeir sem eiga þurr/blaut búninga, kayjaka eða annað í vatnasport ertu hvattir til að koma með það á hátíðarsvæðið og eiga góða stund saman.

14:00 Sigling ef veður leyfir.

15:00 Leikið í Djúpavogsdeildinni á Neistavelli.

Frá kl 11:00 verða foreldrafélög grunn- og leikskóla með afþreyingu fyrir börn á öllum aldri. Formlegri dagskrá lýkur eftir siglingu.

Hátíðarsvæðið er við Faktorshúsið og smábátahöfnina. Munum að ganga snyrtilega um og bera ábyrgð á börnunum okkar.

 

Seyðisfjörður

Laugardagur 11. Júní 2022

11:00 Sigling með Gullver.

Sunnudagur 12. Júní 2022

13:00 Dagskrá á Bæjarbryggjunni: Dorgveiðikeppni, kappróður, leikir og þrautir.

17:00 Heimamyndasýning í Herðubreið.

20:00 Sjómannadagsmessa í Seyðisfjarðarkirkju.

Ljósmynd Jessica Auer.
Ljósmynd Jessica Auer.
Getum við bætt efni þessarar síðu?