Múlaþing sendir sjómönnum, fjölskyldum þeirra og landsmönnum öllum hátíðarkveðjur í tilefni sjómannadagsins sem er sunnudaginn 7. júní. Haldið verður upp á daginn með ýmsum hætti í sveitarfélaginu og rík ástæða til að hvetja íbúa til að koma saman og gera sér glaðan dag í tilefni dagsins.
Djúpivogur
Föstudagurinn 5. júní
20:00 Tónleikar með Mugison í Gömlu kirkjunni. Miðar á tix.is.
Laugardagur 6. júní
10:00-12:00 Kaldvík með opið hús og býður til skemmtunar
13:00 Djúpavogsdeildin: Knattspyrnumót á Neistavelli.
18:30 Kvöldmatur í Löngubúð til styrktar nýbyggingu Björgunarsveitarinnar Báru.
Skráning í síma 862-1667 eða á netfanginu gummih3@gmail.com
19:30 Lokahóf Djúpavogsdeildarinnar
Sunnudagur 7. júní
11:00 Sjómannadagsmessa við Faktorinn
12:00 Dorgveiðikeppni. Verðlaun fyrir stærsta aflann og mest landaðan afla.
13:00 Sigling
14:00 Fjölskylduhátíð við bryggjuna: Hoppukastali, furðufiskar til sýnis og keppni um flottasta fleyið.
14:30-15:30 Hraðsigling með Voxey ferðum
15:30 Grillaðar pylsur í boði Björgunarsveitarinnar Báru undir ljúfum tónum Harmonikkusveitar Djúpavogs
16:30 Koddaslagur við bryggjuna
Nánari upplýsingar á Facebook síðu hátíðarhaldanna
Borgarfjörður
Sunnudagurinn 7. júní:
11:00 Sjómannadagsmessa við Borgarfjarðarhöfn (ef veður leyfir)
12:00 Sigling
13:00 Leikir og sprell í höfninni: Kayakkeppni og belgjaslagur
15:00 Sjómannadagskaffi Sveinunga í Fjarðarborg
Seyðisfjörður
Sunnudagurinn 7. júní
20:00 Sjómannadagsmessa í Seyðisfjarðarkirkju