Pólska listahátíðin Vor / Wiosna fer fram í sjöunda sinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum dagana 15. -17. maí. Eins og nafnið gefur til kynna er hátíðin helguð pólskri list og en markmið hátíðarinnar er að skapa vettvang fyrir pólskt og íslenskt listafólk til að koma fram. Yfirskrift hátíðarinnar að þessu sinni er Sögur úr fjarlægð og nálægð og í ár verður lögð áhersla á sviðslistir. Meðal viðburða eru á pólskir einleikir, kvikmyndasýning, dansnámskeið og fleira.
Hátíðin hefst föstudaginn 15. maí með opnun sýningarinnar Ofin jörð þar sem Martyna Bogaczyk sýnir textílverk. Eftir það rekur hver viðburðurinn annan. Á laugardaginn verður námskeið í kerikmálun og um kvöldið verða frumsýndir tveir einleikir eftir Maó Alheimsdóttur. Á sunnudaginn verður boðið upp á dansnámskeið með Patrycją Bączek og kvikmyndasýningu þar sem myndin Paweł and Wawel verður sýnd. Að henni lokinni verður boðið upp á umræður með höfundum myndarinnar, Krzysztof Kaczmarek og Łukasz Jastrubczak auk Rafał Koczanowicz, sýningarstjóra Pólsku kvikmyndahátíðarinnar í Fjarðabyggð. Sama dag verður önnur sýning á einleikjunum tveimur. Nánari upplýsingar um tímasetningar viðburða má finna hér.
Sýningarstjóri hátíðarinnar er Wiola Ujazdowska. Menningarvefur RÚV ræddi við hana um hátíðina.