Ný ljóðahátíð, Skáldaþing, fer fram í fyrsta sinn í Múlaþingi dagana 20.–31. maí 2026. Dagskráin verður haldin á Egilsstöðum og Seyðisfirði og verður boðið upp á fjölbreytta og lágstemmda viðburði þar sem ljóðlistin fær að njóta sín í ólíkum birtingarmyndum.
Skáldaþing á sér systurhátíðina Skáldasuð á Suðurnesjum sem hefur verið haldin þrívegis. Með Skáldaþingi eru þessar tvær hátíðir nú tengdar saman í fyrsta sinn þvert yfir landið.
Yfir 50 skáld taka þátt í hátíðinni og dagskráin verður bæði fjölbreytt og aðgengileg.
Á meðal viðburða eru „Ljóð í leiðinni“, þar sem ljóð birtast víða í nærumhverfinu, „Ljóð í lúgunni“ þar sem ljóð verða heimsend í gegnum bréfalúgur, og „Ljóð í lauginni“ með upplestri í sundlaugum Seyðisfjarðar og Egilsstaða. Þá verða ljóð einnig sýnileg í búningsklefum og úti í náttúrunni.
Hátíðin hefst miðvikudaginn 20. maí með opnun ljóðamyndlistarsýningar nemenda miðstigs Grunnskóla Seyðisfjarðar á Vesturvegg í Skaftfell Bistro á Seyðisfirði. Aðrir viðburðir á dagskrá eru meðal annars listasýning í Sláturhúsinu, útimyndlistarsýning víðsvegar um Seyðisfjörð og viðburður í Tvísöng.
Allir viðburðir hátíðarinnar eru ókeypis og eru íbúar og gestir hvattir til að taka þátt og leyfa ljóðunum að verða hluta af daglegu umhverfi sínu.
Hátíðin er haldin í samstarfi við Skaftfell, Sláturhús menningarmiðstöð, Þjóðminjasafn Íslands og Tækniminjasafn Austurlands.
Hún er styrkt af Síldarvinnslunni, Menningar-, háskóla- og nýsköpunarráðuneytinu, Bara Snilld, Alcoa og fékk hún einnig menningarstyrk frá Múlaþingi.
Nánari upplýsingar um dagskrá má finna á samfélagsmiðlum hátíðarinnar.