Fara í efni

SkautA fær grindur að gjöf

14.01.2021 Fréttir

Skautasvellið okkar við Samfélagssmiðjuna hefur notið mikilla vinsælda meðal barna og fullorðinna í vetur. Skautafélaginu barst á dögunum gjöf frá versluninni Vaski en þau gáfu stuðningsgrindur fyrir byrjendur. Grindurnar gera skauturum auðveldara fyrir að taka fyrstu skrefin í íþróttinni og finna jafnvægið.

„Okkur finnst svo flott framtak að bjóða upp á skautasvell hér á Egilsstöðum, að við vildum endilega fá að leggja okkar af mörkum og styðja við það,“ segir Tinna Björk Guðjónsdóttir innkaupastjóri Vasks.

Grindurnar hafa nú verið á svellinu í nokkrar vikur og gefið góða raun.

„Það er svo gaman þegar fjölskyldan getur hreyft sig öll saman, svona stuðningsgrindur auka möguleikann á því að allir geti verið með,“ segir Tinna Björk.

Skautasvellið er opið öllum og grindurnar til taks í birgi við svellið.

Mynd birt með leyfi.
Mynd birt með leyfi.
Getum við bætt efni þessarar síðu?