Fara í efni

Skemmdarverk unnin á trjám og gróðri

28.07.2026 Fréttir Egilsstaðir

Því miður hefur borið á því í sumar að skemmdarverk hafi verið unnin á trjám og gróðri á grænum svæðum á Egilsstöðum. Börkur hefur verið fjarlægður af trjám, ung tré skorin í sundur og náttúrulegur lággróður mokaður upp. Sveitarfélagið lýsir vonbrigðum með þessa hegðun og biðlar til fólks að sýna umhverfinu virðingu og láta af skemmdarverkum sem þessum.

Hvers vegna skiptir þetta máli?

Flest viljum við búa í snyrtilegu samfélagi þar sem umgengni og umhirða er til fyrirmyndar. Það á jafnframt við um grænu svæðin okkar þar sem náttúran fær að njóta sín. Skemmdarverk á trjám og öðrum gróðri getur haft langvarandi neikvæð áhrif, bæði fyrir gróður og ásýnd svæða.

Það tekur áratugi að rækta upp falleg tré sem veita skjól og fegra umhverfið. Ef börkur er tekinn af lifandi tré getur það leitt til dauða þess. Það er því leitt þegar slík verðmæti eyðileggjast á skammri stundu vegna hugsunarleysis.

Sé þörf á að grisja svæði er betra að láta sveitarfélagið vita sem sér um umhirðu grænna svæða.

Vinnum saman

Ekki er vitað hver eða hverjir bera ábyrgð á skemmdarverkunum en sveitarfélagið biðlar til foreldra og forráðamanna að ræða við börn sín og ungmenni um mikilvægi þess að virða lifandi náttúru og valda ekki skemmdum á trjágróðri.

Það er hollt og gott að fara út að leika sér, en gerum það í sátt við umhverfið. Saman getum við tryggt að grænu svæðin okkar fái áfram að vaxa og dafna öllum til yndisauka.

Verði fólk vart við skemmdarverk á gróðri í Múlaþingi er það beðið um að tilkynna slíkt í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins, með því að senda tölvupóst á mulathing@mulathing.is eða hringja í síma 4 700 700.

Skemmdarverk á opnum svæðum í Múlaþingi kunna að verða tilkynnt til lögreglu.

 

Skemmdarverk unnin á trjám og gróðri
Getum við bætt efni þessarar síðu?