Fara í efni

Skemmtiferðaskipafélög heilluð af Austurlandi

05.06.2026 Fréttir

Undanfarna daga hefur Cruise Iceland ferðast um landið með fulltrúum skemmtiferðaskipafélaga.

Hópurinn samanstendur af fulltrúum frá Princess, Holland America Line, Seabourn, TUI Cruises, Hapag-Lloyd, Carnival og Norwegian Cruise Line.

Markmiðið með ferðinni er að kynna þá fjölbreyttu afþreyingu sem stendur gestum til boða hringinn í kringum landið. Þau hafa fengið nasaþefinn af ýmiss konar skipulögðum ferðum fyrir bæði stóra hópa og smáa, notið menningaratriða sem sett hafa verið saman með erlenda gesti í huga, heimsótt fjöldann allan af fallegum og tilkomumiklum áningarstöðum og gætt sér á fjölbreyttum veitingum sem eiga uppruna sinn á Íslandi og oft á tíðum á þeim stað sem heimsóttur er hverju sinni.

Hópurinn hefur virkilega notið heimsóknarinnar og þegar fulltrúarnir eru spurðir hvað standi upp úr reynist þeim erfitt að nefna eitthvað eitt enda afar hrifin af því sem þau hafa fengið að kynnast.

Á heimsókn sinni um Austurland að þessu sinni heimsótti hópurinn Stuðlagil, Seyðisfjörð og Djúpavog. Nokkrir starfsmenn hafna Múlaþings slógust í för með hópnum til þess að svara þeim spurningum sem upp kynnu að koma og veita fræðslu um fjórðunginn.

Dulúð í þoku á Seyðisfirði

Á Seyðisfirði var stoppað við Gufufoss þar sem boðið var upp á töfrandi tónlistaratriði sem varð enn magnaðra í samhljómi við niðinn í fossinum. Þá var farið á Norð Austur – Sushi & Bar þar sem bornar voru fram dýrindis kræsingar, bæði fyrir þá sem kunna að meta sjávarfang og þá sem kjósa það síður.

Þegar hópurinn var orðinn saddur og sæll var brunað að Angróbryggjunni þar sem kynntar voru nokkrar ferðir sem hægt er að fara í frá Seyðisfirði. Að lokum heimsóttu þau Ferjuhúsið og gengu þaðan að kirkjunni og fræddust um leið um Regnbogagötuna.

Friðsæld í náttúrufegurð Djúpavogs

Þegar hópurinn kom til Djúpavogs var tekið á móti honum á Faktorshúsinu þar sem gestirnir fræddust um samfélagið á staðnum og nokkrar af þeim ferðum sem í boði eru. Þau fengu að smakka ýmiss konar kræsingar af svæðinu og margir kusu að renna þeim niður með bjór sem bruggaður er á staðnum.

Að því loknu fræddist hópurinn um Hans Jónatan, kíkti á Steinasafn Auðuns og fór í göngutúr um hina hrífandi svörtu sanda innan við flugbrautina.

Síðasti áningarstaðurinn sem hópurinn heimsótti var Gleðivík þar sem þau skoðuðu eggin. Að því loknu beið þeirra óvænt heimsókn í Tankinn þar sem boðið var upp á þjóðlegan söng við kertaljós. Hver einasti tónn magnaðist upp inni í gamla lýsistankinum sem í dag er nýttur sem rými fyrir listafólk.

Hópurinn var svo kvaddur með ljúffengum kvöldverði á Hótel Framtíð áður en hann hélt ferð sinni áfram.

Mikilvægt að sýna þróunina sem hefur átt sér stað

Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri Cruise Iceland, fylgdi hópnum um landið. Spurður út í mikilvægi slíkra ferða sagði hann:

„Þær skipta máli á þessum tímum þar sem undanfarin fjögur ár höfum við verið að gera okkur klár fyrir móttöku skipanna með því að bæta þjónustu og aðstöðu með miklum myndarbrag. Eftir slíkar breytingar í umhverfinu bjóðum við svo skipunum í heimsókn til að sýna hvað hefur verið gert og þá þróun sem hefur átt sér stað.

Það sést hvergi betur en á Austurlandi þar sem ótrúlega mikla grósku er að finna. Gestirnir okkar eru bergnumdir yfir fegurðinni og aðstöðunni um allt land. Þau eru spennt fyrir þeim spennandi hlutum sem verið er að gera í ferðaþjónustu á Austfjörðum og því hvernig Austfirðingar hugsa í skapandi lausnum við þær krefjandi aðstæður sem þau standa frammi fyrir.“

Skemmtiferðaskipafélög heilluð af Austurlandi
Getum við bætt efni þessarar síðu?