Fara í efni

Skoðunaráætlun Slökkviliðs Múlaþings

19.01.2024 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Hér má sjá skoðunaráætlun eldvarnaeftirlits Slökkviliðs Múlaþings fyrir árið 2024, en samkvæmt reglugerð nr. 723/2017 um eldvarnir og eldvarnareftirlit ber slökkviliðsstjóra að gefa út eftirlitsáætlun ársins þar sem gerð er grein fyrir því hvaða mannvirki, lóðir og starfsemi í sveitarfélaginu munu sæta eldvarnareftirliti það árið og birta á heimasíðu sveitarfélagsins.

Listaðar eru upp byggingar sem annað hvort þurfa skoðun árlega eða fjórða hvert ár. Við ákvörðun um skoðun er stuðst við byggingareglugerð og reglugerð um eldvarnir og eldvarnaeftirlit. Viðbúið er að fleiri byggingar en þær sem eru á listanum verði skoðaðar eftir því sem ástæða þykir til. Eldvarnaeftirlitið hefur samband við eigendur bygginga til að fastsetja skoðunartíma þegar kemur að skoðun. Eldvarnaeftirlit er mikilvægur þáttur í forvörnum og eru eigendur bygginga hvattir til að bregðast sem fyrst við athugasemdum ef einhverjar eru. Benda má á að eigendur bygginga geta alltaf haft samband við eldvarnaeftirlitið til að fá upplýsingar og leiðbeiningar í gegnum netfangið baa@eldvarnaeftirlit.is. Einnig geta eigendur bygginga óskað eftir því að fá eldvarnaeftirlitið í heimsókn ef þurfa þykir.

Skoðunaráætlun Slökkviliðs Múlaþings
Getum við bætt efni þessarar síðu?