Samgöngur, atvinnulíf og öflugt menningarlíf í Múlaþingi
Skýrslur sveitarstjóra fyrir maí, júní og júlí bera með sér að fjölbreytt verkefni hafa verið í gangi hjá Múlaþingi undanfarna mánuði. Samgöngur, hafnarmál og atvinnuþróun hafa verið áberandi í hagsmunagæslu sveitarfélagsins, auk þess sem ný sveitarstjórn tók til starfa og menningar- og félagslíf blómstraði um allt sveitarfélagið.
Hafnir, ferðaþjónusta og samgöngur
Á alþjóðlegu skemmtiferðaskiparáðstefnunni Seatrade Global í Miami um miðjan apríl átti íslenski hópurinn, sem taldi 31 fulltrúa hafna og þjónustuaðila, fjölmarga fundi með skipafélögum. Þar voru kynntar nýjungar og framtíðaráform íslenskra hafna.
Fyrir hafnir Múlaþings skiptir fyrirhuguð lenging Strandarbakka á Seyðisfirði miklu máli, enda mun framkvæmdin bæta aðstöðu og fjölga þeim skipum sem geta lagst þar að. Framkvæmdin er háð afgreiðslu samgönguáætlunar og lagði Múlaþing áherslu á að ríkið standi áfram undir 60% kostnaðar. Það var því ánægjulegt þegar samgönguáætlun var afgreidd frá Alþingi að þessi breyting náðist í gegn. Hærri hlutdeild hafnarinnar hefði orðið þungur baggi á sama tíma og fyrirséður er tekjusamdráttur vegna fækkunar skemmtiferðaskipa og þess að fiskilöndun hefur lagst af á Seyðisfirði.
Fulltrúar Múlaþings tóku jafnframt þátt í ráðstefnu Cruise Europe í Reykjavík í maí. Í kjölfarið heimsótti hópur skipuleggjenda ferða hjá skemmtiferðaskipafélögum Stuðlagil, Seyðisfjörð og Djúpavog. Markmiðið var að kynna svæðið, afþreyingu og þjónustu og styrkja Austurland sem áfangastað skipanna.
Ástand samgöngumannvirkja hafði einnig bein áhrif á verkefni sveitarfélagsins þegar ekki reyndist unnt að flytja krana til Djúpavogs vegna þungatakmarkana á brúm og vegum. Af þeim sökum tafðist uppsetning nýrrar flotbryggju. Atvikið sýndi með býsna áþreifanlegum hætti hvernig ástand vegakerfisins getur hamlað atvinnuuppbyggingu og framkvæmdum.
Atvinnuuppbygging og samstarf
Hagsmunagæsla vegna atvinnumála var fyrirferðarmikil. Sveitarstjóri fylgdi umsögn Múlaþings um lagareldisfrumvarpið eftir á fundi atvinnuveganefndar Alþingis. Þar var meðal annars lögð áhersla á að tekjur af fiskeldi renni með fyrirsjáanlegum hætti beint til þeirra sveitarfélaga þar sem starfsemin fer fram og að eftirlits- og sérfræðistörf tengd greininni verði staðsett í nærumhverfi hennar. Því miður náðist ekki að klára frumvarpið á síðasta þingi og því ríkir áfram ákveðin óvissa um greinina sem mikilvægt er að eyða.
Starfshópur ráðuneyta um atvinnumál á Seyðisfirði heimsótti bæinn og fundaði með heimafólki, fulltrúum sveitarfélagsins, Austurbrúar og Byggðastofnunar. Tilgangurinn var að öðlast beina innsýn í áskoranir samfélagsins en ekki síður þau tækifæri og þá uppbyggingu sem unnið er að.
Samtölum við skosk stjórnvöld um mögulegar ferjusiglingar milli Skotlands og Seyðisfjarðar var einnig haldið áfram. Verkefnið er enn á frumstigi en möguleg ferjutenging gæti skapað ný tækifæri fyrir ferðaþjónustu, vöruflutninga og alþjóðlegt samstarf.
Danski sendiherrann á Íslandi, Erik Vilstrup Lorenzen, heimsótti Austurland í maí. Í heimsókninni var meðal annars fjallað um mikilvægi tengingar Íslands og Danmerkur með siglingum Norrænu til Seyðisfjarðar. Sendiherrann heimsótti einnig Seyðisfjörð og kynnti sér starfsemi Smyril Line.
Fimm verkefni í Múlaþingi hlutu styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Þar á meðal eru framkvæmdir til að bæta öryggi við Fardagafoss, uppbygging bílastæðis og gönguleiðar við Baug Bjólfs, göngubrú á Víknaslóðum og áframhaldandi uppbygging við Stuðlagil.
Ný sveitarstjórn tekur til starfa
Sveitarstjórnarkosningar fóru fram í maí og tók ný sveitarstjórn Múlaþings til starfa 3. júní. Í kjölfarið hófu ný ráð, nefndir og heimastjórnir störf. Nýjum kjörnum fulltrúum var boðið upp á fræðslu um hlutverk sitt og starfshætti sveitarfélagsins.
Undirbúningur og framkvæmd kosninganna kölluðu á mikla vinnu innan stjórnsýslunnar, meðal annars vegna mönnunar kjörstjórna, upplýsingagjafar og utankjörfundaratkvæðagreiðslu á starfsstöðvum sveitarfélagsins.
Vinna við fjárhagsáætlun næsta árs hófst jafnframt snemma sumars. Stefnt var að því að leggja fyrstu ramma hennar fyrir sveitarstjórn í september áður en ítarlegri áætlanagerð tekur við á haustmánuðum.
Á tímabilinu voru einnig kvaddar tvær konur eftir farsælan starfsferil hjá sveitarfélaginu og forverum þess. Guðbjörg Gunnarsdóttir lét af störfum eftir áralangt starf í þágu fatlaðs fólks og Aðalheiður Borgþórsdóttir lauk löngum og fjölbreyttum starfsferli sem hófst hjá Seyðisfjarðarkaupstað árið 1984. Þeim eru færðar bestu þakkir fyrir mikilvæg störf í þágu samfélagsins.
Fjölbreytt menningar- og félagslíf
Vori og sumri var fagnað með fjölbreyttum hætti í öllum byggðarkjörnum Múlaþings. Regnbogagatan á Seyðisfirði var máluð með aðstoð íbúa og gesta, Hammondhátíðin fór fram á Djúpavogi í tuttugasta sinn og nemendur í 10. bekk gengu Öxi til að vekja athygli á slæmu ástandi vegarins – og fjármagna um leið skólaferðalag sitt.
Sjómannadagurinn, þjóðhátíðardagurinn, Skógardagurinn mikli og sumarsólstöðuhátíð á Seyðisfirði settu svip sinn á samfélagslífið. Fjölbreyttar listarsýningar voru opnaðar í Skaftfelli, Sláturhúsinu, Glettu og á Djúpavogi, þar á meðal alþjóðlega sýningin Rúllandi snjóbolti 19.
Tvö söfn í Múlaþingi hlutu jafnframt tilnefningu til íslensku safnaverðlaunanna: Minjasafn Austurlands fyrir sýninguna Kjarval á Austurlandi og Tækniminjasafn Austurlands fyrir uppbyggingu og endurreisn safnsins eftir skriðuföllin á Seyðisfirði árið 2020.
Viðburðir tímabilsins byggðust að stórum hluta á ómetanlegu framlagi sjálfboðaliða, íþróttafélaga, björgunarsveita, menningarstarfsfólks og annarra íbúa. Öflugt samfélagslíf verður ekki til af sjálfu sér og er öllum þeim sem lögðu hönd á plóg færðar kærar þakkir.
Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri og Erik Vilstrup Lorenzen sendiherra Danmerkur.
