Fara í efni

Smávægileg röskun á sorphirðu á Djúpavogi

23.02.2026 Tilkynningar Djúpivogur

Af óviðráðanlegum orsökum verður minniháttar röskun á sorphirðu á Djúpavogi í þessari viku.

Sorphirða sem átti að fara fram í dag, mánudag, og á morgun, þriðjudag, færist yfir á miðvikudag. Þannig verða allir flokkar hirtir á miðvikudaginn.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Smávægileg röskun á sorphirðu á Djúpavogi
Getum við bætt efni þessarar síðu?