Fara í efni

Snjallmælavæðing hitaveitu á Egilsstöðum

05.05.2026 Fréttir Egilsstaðir

Átak er að hefjast í uppsetningu snjallmæla á Egilsstöðum þar sem eldri hitaveitumælum er skipt út fyrir snjallmæla. Bænum er skipt upp í svæði og verður haft samband við íbúa þeirra svæða sem eru næst á dagskrá.

Píparar á vegum HEF veitna munu hafa samband við íbúa á Egilsstöðum og nágrenni til að skipuleggja heimsóknir. Mikilvægt er að greiður aðgangur sé að hitaveitugrindum og að aðstæður til vinnu séu viðunandi, þannig að framkvæmdin geti gengið hnökralaust fyrir sig.

Ef spurningar vakna eða þörf er á frekari upplýsingum eru íbúar hvattir til að hafa samband við HEF veitur í síma 4 700 780 eða með því að senda tölvupóst á hef@hef.is.

Sjá frétt á vef HEF veitna: Átak í uppsetningu snjallmæla á Egilsstöðum | HEF veitur

Snjallmælavæðing hitaveitu á Egilsstöðum
Getum við bætt efni þessarar síðu?