Fara í efni

Snjócross keppni í Stafdal

27.04.2023 Fréttir

Laugardaginn 15. apríl var haldin vel heppnuð snjócross keppni í rjómablíðu á Fjarðarheiði rétt ofan við Stafdal. Í keppninni var keppt í fimm flokkum og um 40 keppendur tóku þátt en um var að ræða fimmtu og síðustu umferð Íslandsmeistaramótsins í Snjócross.
Voru allar aðstæður til fyrirmyndar og þrátt fyrir að svo seint sé liðið á veturinn var nægur snjór og sólin lét sig svo sannarlega ekki vanta en fjöldi fólks gerði sér leið upp eftir til að fylgjast með æsispennandi keppninni og njóta veðurblíðunnar. Almenn ánægja var með keppnina hjá bæði keppendum og aðstandendum. Fyrir sveitarfélagið er frábært að fá svona flotta keppni í Stafdal enda dregur hún mikinn fjölda fólks á svæðið. Hægt er að skoða vefsíðu snjócross á Íslandi hér.

Snjócross keppni í Stafdal
Getum við bætt efni þessarar síðu?