Fara í efni

Snorrasjóður auglýsir eftir umsóknum

09.09.2026 Djúpivogur Auglýsingar

Styrktarsjóður Snorra Gíslasonar frá Papey auglýsir eftir umsóknum um námsstyrk.

Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins er markmið hans „að styrkja ungt fólk úr gamla Djúpavogshreppi til náms. Styrkir skulu veittir nemum á aldrinum 18 – 25 ára með búsetu í gamla Djúpavogshreppi til náms á framhaldsskólastigi. Sérstaklega skal horft til náms sem getur mögulega komið samfélaginu í gamla Djúpavogshreppi til góða“. Tekið er á móti umsóknum bæði fyrir staðnám og fjarnám.

Úr sjóðnum verður veittur einn styrkur að upphæð 500.000 krónur. Umsókn skal fylgja ítarleg greinargerð um fyrirhugað nám ásamt upplýsingum um fyrra nám auk rökstuðnings um hvernig námið mun koma samfélaginu í gamla Djúpavogshreppi til góða.

Umsóknarfrestur er til 15. október 2026 en úthlutun fer fram um áramót.

Vinsamlega sendið umsóknir rafrænt á netfangið bergthora.birgisdottir@gmail.com.

Nánari upplýsingar veitir Bergþóra Birgisdóttir.

–Stjórn Styrktarsjóðs Snorra Gíslasonar

Snorri á Bjargi. Mynd: Morgunblaðið
Snorri á Bjargi. Mynd: Morgunblaðið
Getum við bætt efni þessarar síðu?