Af óviðráðanlegum ástæðum seinkar söfnun á heyrúlluplasti frá því sem segir í sorphirðudagatali.
Heyrúlluplasti verður safnað í nágrenni Djúpavogs og Seyðisfjarðar í þessari viku 13.–17. apríl og á Héraði í vikunni 20.–24. apríl.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Hirðuaðili er Íslenska Gámafélagið og sér fyrirtækið um að hafa samband við bændur áður en söfnun fer fram.
Mikilvægt er að plastið sé hreint og laust við hey, net, bönd og aðra aðskotahluti þegar því er safnað. Bent er á að verktaka er heimilt að neita að hirða heyrúlluplast sem fullnægir ekki þessum skilyrðum.
Þá er gott ef bændur hafa plastið tilbúið til hirðu á aðgengilegum og hreinlegum stað.
Þeir bændur sem vilja nýta sér þjónustuna og hafa ekki gert það áður eru beðnir um að skrá sig hjá sveitarfélaginu. Senda þarf nafn tengiliðs, símanúmer, netfang (ef annað en það sem sent er úr) og heimilisfang / bæjarnafn á netfangið umhverfisfulltrui@mulathing.is eða hafa samband í síma 470 0732. Einnig er velkomið að hafa samband fyrir frekari upplýsingar um söfnunina.
Hér má finna leiðbeiningar um hvernig best sé að ganga frá heyrúlluplasti á einfaldan hátt.