Fara í efni

Söfnun garðaúrgangs í Múlaþingi 3. júní

27.05.2026 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Miðvikudaginn 3. júní verður boðið upp á gjaldfrjálsa söfnun á garðaúrgangi frá heimilum í þéttbýli Múlaþings fyrir þá sem þess óska.

Garðaúrganginn þarf að skilja eftir á aðgengilegum stað við lóðarmörk við götu og skrá sig hjá sveitarfélaginu. Þau sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru beðin um að senda tölvupóst á umhverfisfulltrui@mulathing.is fyrir 2. júní til að tryggja hirðu. Taka þarf fram nafn, stað og heimilisfang.

Í Múlaþingi eru losunarsvæði fyrir garðaúrgang og óvirkan úrgang í öllum byggðarkjörnum. Þar er hægt að losa sig við: gras, trjágreinar, jarðveg og járnhreinsuð múr- og steypubrot.

Losunarsvæðin eru á eftirtöldum stöðum:

Íbúar eru hvattir til að ganga vel um losunarsvæðin og taka með sér allan óæskilegan úrgang af svæðinu, til dæmis ruslapoka.

Á losunarsvæðunum verður boðið upp á moltu í sumar og eftir atvikum mold. Á Seyðisfirði er moltan aðgengileg við Vestdalseyrarveg.

Leggjum okkar af mörkum við að koma Múlaþingi hreinu og snyrtilegu inn í sumarið.

 

Söfnun garðaúrgangs í Múlaþingi 3. júní
Getum við bætt efni þessarar síðu?