Fara í efni

Söngvavor á leikskólum

18.05.2026 Fréttir Egilsstaðir

Það var mikið um dýrðir í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og kirkjunni á Eskifirði á dögunum þegar söngvarar framtíðarinnar stigu þar á stokk og fluttu lög eftir Dr. Gunna. Tónleikarnir báru yfirskriftina Einn fyrir alla, allir fyrir einn og voru hluti af verkefninu Söngvavor sem miðar að því að efla tónlistarþátttöku fimm ára barna í gegnum söng og hljóðfæraleik í samstarfi við leikskóla.

Verkefnið teygir sig um allt land og er þetta í annað sinn sem leikskólar á Austurlandi taka þátt. Menningarstofa Fjarðabyggðar leiðir verkefnið hér fyrir austan og sér um skipulag og framkvæmd í samstarfi við Múlaþing og leikskólana.

Á tónleikunum í Sláturhúsinu komu fram nemendur frá leikskólunum Tjarnarskógi og Hádegishöfða. Um undirleik sáu nemendur og kennarar frá Tónlistarskólunum á Egilsstöðum og í Fellabæ. Sóley Þrastardóttir stjórnaði hljómsveitinni en kynnir og kórstjóri var Karítas Harpa Davíðsdóttir sem jafnframt leiddi verkefnið fyrir hönd Menningarstofu Fjarðabyggðar: „Það var ótrúlega skemmtilegt að hafa lifandi tónlist undir og mikil upplifun sérstaklega fyrir krakkana að syngja við undirleik hljómsveitar. Þetta er núna annað árið sem við leiðum verkefnið á Austurlandi og hefur okkur tekist að stækka það aðeins milli ára. Markmiðið er auðvitað að geta stækkað það og þróað með hverju árinu sem við tökum þátt“,  segir Karítas Harpa.

Sem fyrr segir samanstóð efnisskráin af lögum eftir Dr. Gunna sem börnin sungu af mikilli innlifun. Augljóst var að þau höfðu lagt mikla vinnu í æfingar og ástæða til að hrósa þeim, kennurum, tónlistarfólki og stjórnendum fyrir vel heppnaða tónleika og samstarf.

Söngvavor á leikskólum
Getum við bætt efni þessarar síðu?