Fara í efni

Sorphirða í Múlaþingi

18.01.2023 Fréttir

Sorphirða í Múlaþingi hefur gengið vel undanfarið og er nú samkvæmt áætlun í þéttbýli og dreifbýli. Vonir standa til að ekki komi til frekari raskana og hægt verði að halda áætlun áfram, en færð og veður hafa að sjálfsögðu mikil áhrif. Múlaþing vill árétta mikilvægi þess að sorpílát séu starfsfólki Gámafélagsins sjáanleg og aðgengileg til að sorphirðan gangi sem hraðast fyrir sig. Mikilvægt er að tunnur séu ávallt á sama stað og áberandi, ekki á bak við hús til dæmis. 

Sorphirða í Múlaþingi
Getum við bætt efni þessarar síðu?