Fara í efni

Starf forstöðuaðila skíðasvæðisins í Stafdal laust til umsóknar

31.08.2022 Fréttir Egilsstaðir Seyðisfjörður

Fjölskyldusvið Múlaþings auglýsir starf  forstöðuaðila skíðasvæðisins í Stafdal.
Um er að ræða 100% starf sem ráðið er í frá hausti 2022. Í starfinu felst dagleg umsjón með rekstri skíðasvæðisins, starfsmannahald, samskipti við notendur og kynningarstarf. Leitað er að aðila með reynslu af útivist og skíðamennsku með brennandi áhuga og drifkraft til þess að vinna að þróun og utanumhaldi svæðisins.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bylgja Borgþórsdóttir, í gegnum netfangið bylgja.borgthorsdottir@mulathing.is.

Starfsauglýsing forstöðuaðila skíðasvæðisins í Stafdal.

Starf forstöðuaðila skíðasvæðisins í Stafdal laust til umsóknar
Getum við bætt efni þessarar síðu?