Fara í efni

Starf við Djúpavogshöfn

31.05.2023 Fréttir Djúpivogur

Djúpavogshöfn auglýsir eftir starfsmanni í tengslum við komur skemmtiferðaskipa í sumar.

Starfið felst í upplýsingagjöf og öryggisvörslu á hafnarsvæðinu þá daga sem skip eru við bryggju eða á akkeri.
Vinnutími er breytilegur og tekur mið af skipakomum. Mögulegt er að fleiri en einn skipti starfinu með sér.
Gerð er krafa um enskukunnáttu, starfsmaður þarf að vera 18 ára eða eldri og þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Frekari upplýsingar veitir Gauti Jóhannesson staðgengill hafnarstjóra, gauti.johannesson@mulathing.is.

Starf við Djúpavogshöfn
Getum við bætt efni þessarar síðu?