Fara í efni

Starfsfólk Stólpa sækir sérhæft námskeið í Þjónandi leiðsögn

22.04.2026 Fréttir

Í málefnum fatlaðra í Múlaþingi er unnið eftir hugmyndafræði sem kallast Þjónandi leiðsögn (Gentle Teaching). Hugmyndafræðin byggist á einstaklingsmiðaðri nálgun þar sem traust og samskipti eru í forgrunni. Mannleg gildi, umhyggja, tengsl og hvatning móta samskiptin, með það að markmiði að styðja einstaklinginn af alúð og hvetja hann til að setja sér markmið og ná þeim.

Dagana 13.-17. apríl stóð SÍMEY á Akureyri fyrir sérhæfðu námskeiði í Þjónandi leiðsögn og tóku þátt í því tveir starfsmenn Stólpa, sem er hæfing og iðja fyrir fatlaða á Egilsstöðum.

Námskeiðið var opið þeim sem lokið hafa mentornámi í þjónandi leiðsögn og/eða starfað í fimm ár eða lengur við stuðning og umönnun. Leiðbeinendur námskeiðsins komu frá COR Academy í Saskatchewan í Kanada, Tim Jones (Gentle Teaching Ambassador) og Michael Lavis (forstjóri COR). Yfirumsjón hafði Kristinn Már Torfason hjá velferðarsviði Akureyrarbæjar. COR Academy er með þeim fremstu á heimsvísu í miðlun Þjónandi leiðsagnar sem þjálfunar- og fræðslumiðstöð með námskeið fyrir meðal annars fólk í félags- og fötlunarþjónustu, skólum og umönnun.

„Í mínu starfi hefur Þjónandi leiðsögn verið nálgun sem ég hef átt auðvelt með að tileinka mér. Það var gífurlega áhugavert og stórt tækifæri að eyða þessum fimm dögum með kollegum úr öllum landshlutum við að dýpka þekkingu og skilning á þeirri hugsjón sem Þjónandi leiðsögn er. Við sem störfum með fólki sem tekst á við fleiri áskoranir í lífinu en gengur og gerist, berum samfélagslega ábyrgð á að allir upplifi sig sem jafningja með öryggi, skilyrðislausa umhyggju og virðingu að leiðarljósi. Breytingin hefst með okkur,“ segir Elva Rún, leiðbeinandi í Stólpa.

„Mér fannst þetta námskeið ótrúlega lærdómsríkt og vel undirbúið. Það augljóst hve Tim, Michael og Kiddi brenna fyrir þessum fræðum. Líkt og þeir sögðu að þar sem þeir vinna í Kanada eru alla vega 100 manns á biðlista eftir að byrja að vinna hjá þeim og þurfa aldrei að auglýsa störf sem er alveg magnað. Ég hlakka mjög til að halda áfram að iðka Gentle Teaching og koma þessu meira inn í starfsemina hérna í Múlaþingi því það er alltaf hægt að gera betur og læra meira,“ segir Jóhanna Kristín félagsliði og sjúkraliði í Stólpa.

Jóhanna Kristín og Elva Rún

Starfsfólk Stólpa sækir sérhæft námskeið í Þjónandi leiðsögn
Getum við bætt efni þessarar síðu?