Starfshópur stjórnarráðsins um atvinnumál á Seyðisfirði heimsótti bæjarfélagið þann 29. apríl. Þar kynntu fulltrúar hópsins sér aðstæður og áttu samtöl við heimafólk um stöðu og framtíð atvinnulífs á svæðinu.
Í starfshópnum sitja fulltrúar frá forsætisráðuneyti, atvinnuvegaráðuneyti, innviðaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti auk umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Markmið heimsóknarinnar var að fá beina innsýn í þær áskoranir sem samfélagið stendur frammi fyrir en einnig að kynnast þeim tækifærum og þeirri uppbyggingu sem unnið er að á Seyðisfirði.
Með starfshópi stjórnarráðsins í för var einnig samráðshópur um uppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði sem byggðaráð Múlaþings skipaði. Í hópnum sitja Margrét Guðjónsdóttir fyrir hönd heimastjórnar Seyðisfjarðar, Þröstur Jónsson og Vilhjálmur Jónsson, kjörnir fulltrúar. Með í heimsókninni voru einnig Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, Alda Marín Kristinsdóttir, verkefnastjóri atvinnumála og Páll Baldursson, verkefnastjóri atvinnu- og byggðarþróunar hjá Austurbrú.
Fjölmargar hugmyndir þrátt fyrir hamfarir
Sérstök áhersla var lögð á að skoða þá sérstöðu sem skapast hefur vegna þess að stór hluti atvinnuhúsnæðis á Seyðisfirði er innan skilgreinds hættusvæðis. Vegna þeirra takmarkana sem því fylgja hefur svæðið að stórum hluta verið óvirkt til atvinnuuppbyggingar um árabil sem hefur haft áhrif á þróun atvinnulífs og möguleika til nýtingar fasteigna og atvinnusvæða í bænum.
Dagskrá heimsóknarinnar var fjölbreytt og hófst með gönguferð um atvinnusvæði Seyðisfjarðar þar sem farið var yfir áhrif náttúruhamfara síðustu ára og stöðu atvinnusvæða sem orðið hafa fyrir áhrifum þeirra. Þá voru kynntar hugmyndir um mögulega nýtingu atvinnuhúsnæðis og uppbyggingu til framtíðar.
Einnig fékk starfshópurinn tækifæri til að kynnast þeim krafti sem býr í samfélaginu á Seyðisfirði og þeim fjölmörgu hugmyndum og verkefnum sem unnið er að þrátt fyrir þau áföll sem dunið hafa á undanförnum árum. Meðal annars voru kynnt verkefni tengd ferðaþjónustu, matvælaframleiðslu, menningu og frekari atvinnuuppbyggingu.
Unnið áfram með sveitarstjórn og íbúum
„Við erum þakklát fyrir að ríkisstjórnin hafi sett þennan hóp á laggirnar til að styðja við okkur að leita nýrra atvinnutækifæra á Seyðisfirði,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, um heimsóknina. „Við bindum vonir við að hægt verði að hugsa út fyrir kassann þegar kemur að því að leita leiða til að styðja við frumkvöðla og koma til móts við þá sem eru fastir í atvinnuhúsnæði á ofanflóðahættusvæði. Ljóst er að það vantar ekki hugmyndir á Seyðisfirði en það vantar aðgengi að fjármagni til fjárfestinga.“
Karl Guðmundsson, formaður starfshóps stjórnarráðsins um atvinnumál á Seyðisfirði, segir heimsóknina hafa verið afar mikilvæga fyrir áframhaldandi vinnu hópsins. „Það var ómetanlegt að fá tækifæri til að finna kraftinn í samfélaginu og heyra beint frá íbúum á Seyðisfirði. Við eigum í mjög góðu samtali við sveitarstjórnina og erum að vinna þessi mál hratt en örugglega. Það er margt að breytast í bænum en við fengum góða kynningu á þeim tækifærum sem íbúar horfa til. Við hlökkum til að vinna áfram þétt með sveitarstjórn og íbúum að finna leiðir til að styrkja grunninn í atvinnumálum á Seyðisfirði.“
Í lok dags sat starfshópurinn íbúafund heimastjórnar Seyðisfjarðar í Herðubreið þar sem atvinnumál voru meðal helstu umræðuefna. Þar gafst íbúum kostur á að koma sjónarmiðum sínum og áherslum á framfæri beint við fulltrúa stjórnarráðsins.