Fara í efni

Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn!

22.04.2026 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Stóri plokkdagurinn verður haldinn hátíðlegur um land allt sunnudaginn 26. apríl og mun Múlaþing að sjálfsögðu taka þátt. Öll eru hvött til að leggja sitt af mörkum og taka þátt í skemmtilegri og gagnlegri útivist. Hjálpumst að við að koma sveitarfélaginu hreinu inn í sumarið.

Á hverju ári safnast töluvert magn af rusli úr umhverfinu sem kemur í ljós eftir veturinn þegar snjóa leysir. Með sameiginlegu átaki getum við haft sýnileg áhrif á nærumhverfi okkar og notið um leið ánægjulegrar samverustundar.

Eyþórsdagurinn á Austurlandi

Á Austurlandi er dagurinn einnig kallaður „Eyþórsdagurinn“ til heiðurs Eyþóri Hannessyni, sem var brautryðjandi í umhverfishreinsun og hvatti með fordæmi sínu til aukinnar umhyggju fyrir umhverfinu. Á deginum tökum við Eyþór okkur til fyrirmyndar og sameinumst um að huga að nærumhverfinu og tína upp rusl sem liggur á víðavangi eftir veturinn.

Hægt er að fá ruslapoka og fá lánaðar ruslatínur í þjónustumiðstöðvum sveitarfélagsins á opnunartíma þeirra. Fulla ruslapoka má skilja eftir á sýnilegum stöðum til að auðvelda sveitarfélaginu hirðu þeirra. Mikilvægt er að binda vel fyrir pokana áður en skilið er við þá og gott að láta sveitarfélagið vita af staðsetningu þeirra.

Að plokki loknu verður víða boðið upp á pylsugrill til að fagna árangri dagsins. Einstaklingar, vinnustaðir og félagasamtök eru hvött til að gera sér glaðan dag sunnudaginn 26. apríl og taka þátt í Stóra plokkdeginum í Múlaþingi.

Stóri plokkdagurinn eftir stöðum

Egilsstaðir og Fellabær
Rótarýklúbbur Héraðsbúa mun plokka á milli klukkan 10–12. Á Egilsstöðum er mæting í Tjarnargarðinum og í Fellabæ við Fellahúsið við Fellavöll. Þar verður hægt að nálgast ruslapoka og fá lánaðar ruslatínur meðan birgðir endast. Að plokki loknu verða grillaðar pylsur í Tjarnargarðinum.

Borgarfjörður
UMFB mun hefja plokkið klukkan 14 við Fjarðarborg en þar verður hægt að nálgast ruslapoka og fá lánaðar ruslatínur á meðan birgðir endast. Að plokki loknu verður grillað við Fjarðarborg klukkan 17.

Seyðisfjörður
Plokkað verður milli kl. 12–14 og geta íbúar fengið ruslapoka og lánaðar ruslatínur við Seyðisfjarðarkirkju.

Djúpivogur
Íbúasamtök Djúpavogs og nærsveita plokkuðu síðastliðinn sunnudag og gekk það vel. Að lágmarki 200 kg af rusli söfnuðust og bærinn orðinn hreinn og fínn fyrir Hammondhátíð sem hefst á fimmtudaginn. Múlaþing þakkar öllum þeim sem tóku þátt. Áhugasömum plokkurum er áfram velkomið að nálgast plokktangir og poka í þjónustumiðstöðinni.

Nokkrir hlutir sem gott er að hafa í huga áður en haldið er út að tína rusl:

  • hafa með sér vinnu- eða gúmmíhanska
  • klæða sig eftir veðri
  • ákveða svæði og tala sig saman við aðra plokkara
  • brýna fyrir börnum að vara sig á oddhvössum eða beittum hlutum

Nánari upplýsingar má finna á plokk.is og í kortasjánni plokkari.is þar sem hægt er að merkja svæði sem hafa verið plokkuð eða þarfnast hreinsunar.

Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn!
Getum við bætt efni þessarar síðu?