Félagsþjónusta Múlaþings leitar að fólki sem er tilbúið til að gerast stuðningsfjölskylda.
Hlutverkið felst í að taka barn eða börn inn á heimilið, oftast eina helgi í mánuði. Um er að ræða börn með fötlun eða börn sem búa við erfiðar félagslegar hindranir eða aðstæður. Leitað er að fólki sem er fært um að skapa öruggar aðstæður með hlýju og nærgætni en skýrum mörkum. Fyrir barnið er stuðningsfjölskylda hugsuð sem skemmtileg upplifun og tilbreyting, en um leið hvíld og stuðningur fyrir foreldra eða forsjáraðila barnanna.
Greitt er samkvæmt gjaldskrá félagsþjónustu Múlaþings fyrir þjónustu stuðningsfjölskyldna.
Nánari upplýsingar veita Guðbjörg Gunnarsdóttir, deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks, gudbjorg.gunnarsdottir@mulathing.is, og Rannveig Hrönn Friðriksdóttir, verkefnastjóri í barna- og fjölskylduvernd Múlaþings, rannveig.fridriksdottir@mulathing.is, eða í síma 4 700 700.