Fara í efni

Stuðningsfjölskyldur í Múlaþingi

21.09.2026 Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður Auglýsingar

Múlaþing leitar að fólki í öllum byggðarkjörnum sem er tilbúið til að gerast stuðningsfjölskylda.

Stuðningsfjölskyldur veita foreldrum barna stuðning við foreldrahlutverkið. Hlutverk þeirra er meðal annars að veita foreldrum tækifæri til hvíldar, styrkja stuðningsnet barnanna og auka möguleika þeirra á félagslegri þátttöku.

Hjá stuðningsfjölskyldum fá börn tilbreytingu, hvatningu og stuðning auk þess sem þau fá tækifæri til þess að efla félagsleg tengsl sín og virkni. Barnið dvelur á heimili stuðningsfjölskyldunnar og tekur þátt í daglegu heimilislífi hennar.

Að veita barni stuðning er gefandi og fallegt starf. Um er að ræða 2-4 sólarhringa í mánuði eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar veitir Anna Steinunn Árnadóttir, deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks, anna.arnadottir@mulathing.is eða í síma 4 700 700.

Stuðningsfjölskyldur í Múlaþingi
Getum við bætt efni þessarar síðu?