Fara í efni

Styrkir Fjölskylduráðs: umsóknarfrestur til og með 15. mars

28.02.2022 Fréttir

Fjölskylduráð Múlaþings auglýsir til umsóknar styrki til íþrótta- og tómstundastarfs með umsóknarfrest til og með 15. mars 2022.

Múlaþing veitir styrki til einstaklinga, hópa, félagssamtaka, fyrirtækja og stofnana til íþrótta- og tómstundatengdra verkefna.

Afgreiðsla styrkumsókna mun liggja fyrir í byrjun apríl 2022. Styrkir eru einungis greiddir út á því ári sem þeir eru veittir og færast ekki á milli ára nema sérstaklega sé um það samið. Næst verður auglýst í september, með umsóknarfrest 15. október 2022.

Umsækjendur er hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun styrkja íþrótta- og tómstundaráðs. Sótt er um á Mínum síðum inni á heimasíðu Múlaþings.

Styrkir Fjölskylduráðs: umsóknarfrestur til og með 15. mars
Getum við bætt efni þessarar síðu?