Fara í efni

Styrkir til endurhæfingar

17.03.2021 Fréttir

Félagsþjónustur Múlaþings og Fjarðabyggðar vekja athygli á rétti fatlaðs fólks til að sækja um styrki til náms og til verkfæra- og tækjakaupa.

Skv. lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er heimilt að veita fötluðu fólki styrki eða fyrirgreiðslu vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar sem hér segir:

  1. Styrki til verkfæra- og tækjakaupa eða aðra fyrirgreiðslu vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni.
  2. Styrki til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga.

Umsóknir skulu berast til Félagsþjónustu Múlaþings eða til Fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar, á eyðublaði sem hægt er að finna á heimasíðu Múlaþings.

Umsóknarfrestur er til 31. mars næst komandi.

Félagsþjónusta Múlaþings 
Lyngási 12,
700 Egilsstaðir 
sími 470 0700 

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar
Hafnargata 2,
730 Reyðarfjörður
sími 470 9000

Styrkir til endurhæfingar
Getum við bætt efni þessarar síðu?