Félagsþjónusta Múlaþings vekur athygli á rétti fatlaðs fólks til að sækja um styrki til námskostnaðar og til verkfæra- og tækjakaupa.
Samkvæmt Lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er heimilt að veita fötluðu fólki styrki eða fyrirgreiðslu vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar sem hér segir:
- Styrki til verkfæra- og tækjakaupa eða aðra fyrirgreiðslu vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni.
- Styrki til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga.
Umsóknir skulu berast rafrænt á mínum síðum hjá Múlaþingi eða á eyðublaði sem hægt er að nálgast á skrifstofu Múlaþings.
Frekari upplýsingar gefur Guðbjörg Gunnarsdóttir, deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks í síma 4700 700 eða í gegnum netfangið: gudbjorg.gunnarsdottir@mulathing.is
Umsóknarfrestur er til 1. desember næstkomandi.