Velferð Múlaþings vekur athygli á rétti fatlaðs fólks til að sækja um styrki til greiðslu námskostnaðar og til verkfæra- og tækjakaupa.
Samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er heimilt að veita fötluðu fólki styrki eða fyrirgreiðslu vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar sem hér segir:
- Styrk til 18 ára og eldri vegna verkfæra- og tækjakaupa eða aðra fyrirgreiðslu vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni.
- Styrk til 16 ára og eldri vegna greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga.
Umsóknir skulu berast rafrænt á Mínum síðum hjá Múlaþingi eða á eyðublaði sem hægt er að nálgast á skrifstofu Múlaþings.
Frekari upplýsingar gefur Anna Steinunn Árnadóttir deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks í síma 4700 700 eða í gegnum netfangið: anna.arnadottir@mulathing.is.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember næstkomandi.