Fara í efni

Styrkir til íþrótta- og tómstundastarfs

22.02.2023 Fréttir

Múlaþing auglýsir til umsóknar styrki til íþrótta- og tómstundastarfs með umsóknarfrest til og með 15. mars 2023.
Veittir eru styrkir til einstaklinga, hópa, félagssamtaka, fyrirtækja og stofnana til íþrótta- og tómstundatengdra verkefna.

Afgreiðsla styrkumsókna mun liggja fyrir í byrjun apríl 2023. Styrkir eru einungis greiddir út á því ári sem þeir eru veittir og færast ekki á milli ára nema sérstaklega sé um það samið. Næst verður auglýst í september, með umsóknarfrest til 15. október 2023.

Umsækjendur er hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun styrkja en sótt er um á ,,Mínum síðum" inni á heimasíðu Múlaþings. 

Styrkir til íþrótta- og tómstundastarfs
Getum við bætt efni þessarar síðu?